Aumingja Svíarnir

Ekki nóg með að margir kristnir hati Svíþjóð, eins og sjá má á þessari heimasíðu http://www.godhatessweden.com/, heldur eru einnig múslimarnir farnir að hata þá.  Það er kanski kominn tími til að Svíar standi í lappirnar í stað þess að gefa bara hinn vangann, eins og Jesús sjálfur hefði gert.  Trúaðir vilja greinilega ekki að menn hegði sér eins og Jesús. 


mbl.is Brenndu sænska fánann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Arnar Magnússon

Ég skil nú ekki alveg hvers vegna mönnum er svona uppsigað við það að brenna þjóðfána, það stendur skýrum stöfumí reglugerðinni að það skuli brenna Fánann, ef á annað borð þurfi einhverra hluta vegna að farga honum, það væri mun meiri óvirðing ef honum væri flaggað td. útkrotuðum, skemmdum, trosnuðum, eða td. með greinilegum fótsporum svo eitthvað sé nefnt. Bestu kv. Siggi Magg.

Sigurður Arnar Magnússon, 27.3.2010 kl. 22:32

2 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Sigurður... Það er jú minst á að brenna hann ef þarf að farga honum, en það er ekki talað um að þess þurfi svona opinberlega og allra síst í mótmælaaðgerðum.

Ef farga á fána þá skal það gert í ró og næði og af tilhlýðilegri virðingu.

Kveðja

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 27.3.2010 kl. 22:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband