15.10.2011 | 22:47
Þetta er ekkert óalgengt
Þótt bæði lögregla og vísindamenn standi ráðþrota, þá virðist þetta hafa einhvað um lit húðarinnar
að gera, líkt og sjá má á næstu mynd.
Eltist um hálfa öld á nokkrum dögum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.7.2011 | 17:00
Hert skotvopnalög breyta engu
Sé borin saman tíðni milli morða með skotvopnum og byssueignar, þá eru ekki mikil tengsl á milli skotvopnaeignar á morðtíðni.
http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_countries_by_gun_ownership
http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_countries_by_intentional_homicide_rate
Ekki ýkja mikil tengsl þar.
Vilja endurskoða lög um skotvopn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.7.2011 | 18:43
''Trúverðugleiki'' alþjóðahvalveiðiráðsins í húfi?
Umhverfisverndarsamtök fagna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.7.2011 | 22:07
Össur er Össur að vanda
Össur veit greinilega jafn lítið um málefni Palestínu og hann veit um Ísland, enda virðist hann reiðubúinn að afsala fiskveiðiréttindum okkar fyrir Evrópusambandið.
2 hlutir sem ættu að fara á hreint
Ísland þarfnast fisksins, án hans drepumst við. Varanlegar úrlausnir eru ekki í boði og Íslendingar munu aldrei samþykkja ESB samning án þeirra.
Ísrael mun aldrei semja við Hamas í nálægri framtíð, Palestínumenn ættu hitt þó heldur að reyna að koma í veg fyrir að vera bendlaðir við Hamas.
Gagnrýnir herkví | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.7.2011 | 16:15
Húkkaðu far í Grikklandi
Össur fer til Gasa og Vesturbakkans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.6.2011 | 18:20
Gömul hefð með nýju sniði
Það hefur fáum Íslendingum orðið meint af slíkri þjónustu og er þetta í raun bara eðlilegt ástand þar sem margir sækja í herþjónustu vegna ævintýrarþrár(þótt þeir uppskeri ekki alltaf það sem þeir sái) og á Íslandi er ekki í neinn her til að komast í. Auk þess eru ef til vill einhverjir sem styðja aðgerðirnar í Afganistan og langar til að taka þátt í því starfi, þá er þetta ágæt leið.
Það voru nú líka einhverjir Norðmenn, Svíar og Danir sem gengu í Finnska herin í vetrarstríðinu 1939-1940 og enginn sá ástæðu til að agnúast út í slíkt.
Íslendingar í herþjónustu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.3.2011 | 16:36
Botulinum Toxin
Bótox-meðferð í heimahúsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.3.2011 | 13:24
Skammist ykkar Evrópa
Það vita allir að Gaddafi ber ábyrgð á Lockerbie. Það vita líka flestir að hann senti hermenn til Úganda til að styðja Idi Amin þegar hann réðst á Tansaníu. Hann átti í stöðugum erjum við Bandaríkjamenn á níunda áratugnum sem enduðu í nokkrum loftorrustum, smá skipabardögum og loftárásum Bandaríkjamanna á nokkra útvalda staði í Líbíu, til að bera höll Gaddafis.
En árið 1991 þegar Bandaríkjamenn, Bretland, Arababandalagið, Frakkland, Danmörk, Pakistan svo fáeinar þjóðir séu nefndar(arabandalagið samanstóð af Sýrlandi, Sádi Arabíu, Egyptlanadi og 4 öðrum löndum) Réðust gegn Írak vegna innrásar Saddams á Kúveit þar sem Kúveit var frelsað og herir Saddams eyðilagður að mestu, rann upp fyrir Gaddafi að hann þyrfti að breyta hegðun sinni. Hann yrði að fara að hegða sér vel, ella væri úti um hann.
Svo fór Gaddafi um heimin líkt og betruð bytta. Hann hætti að ráðast á skip útfyrir ströndum Líbíu, hann baðst afsökunar á Lockerbie og borgaði himinháar skaðabætur og hélt sig til hlés. Evrópuþjóðirnar héldu að hann hefði vitkast og byrjuðu viðskipti við Gaddafi á ný, eflaust hefur olía Líbíu liðkað fyrir samskiptum. Loks hófu Evrópuþjóðirnar að selja Gaddafi vopn og um tíma virtist hann alveg batnaður.
Í ljós hefur komið, að þessi yfirbót var bara yfirhylming. Hann er alveg jafn ruglaður og áður, en hann óttast þó enn alþjóðasamfélagið. Þess má til gamans geta, að eftir að hernaðaraðgerðir voru heimilaðar, lýsti hann yfir einhliða vopnahlé. Hvort það standist er spurning, það virðist ekki ætla að halda og auk þess munu uppreisnarmenn vafalaust krefjast afsagnar Gaddafis. En jafnvel þó vopnahlé haldist er samt eitt sem verður að gera.
Gaddafi skal víkja, hann hefur stjórnað nógu lengi, hann hefur sannað eigin heimsku og grimmd, hann hefur sannað að hann er jafn ofstækisfullur og áður, líkt og heyra má í tvem nýlegum ræðum hans, en þar segir ,,Við þurfum ekki einu sinni að berjast til að hertaka Evrópu'' og ,,Evrópa ætti að lýsa yfir stríði núna, ella gerast múslimar'' hann hefur sannað að hann skammast sín ekkert fyrir Lockerbie, þegar hann þrýsti eftir því að fá Megrahi lausan og Bretar leystu hann. Hann átti ekki mikið eftir ólifað var sagt, en hann lifir enn góðu lífi sem Þjóðhetja í Trípólí, eflaust með góða lækna kostaða af Gaddafi.
Bretland, Ítalía, Þýskaland, Belgía og Frakkland ætti að biðja Líbíu og heiminn allan afsökunnar á auðtrú sinni gagnvart Gaddafi, þessi lönd ættu að leiða hernaðaraðstoð við uppreisnarmenn, sjá þeim fyrir vopnum og framfylgja flugbanninu. Bandaríkjamenn geta talið sig sýkn af þessari aðstöðu, og auk þess hafa þeir litla sem enga hagsmuna að gæta, enda fer flestöll olía frá Líbíu til Evrópu. Það er í raun til skammar að þessar þjóðir hafi stutt Gaddafi og orðum og verki og vilji nú fá Bandaríkjamenn til að bera meginþungan af hernaðaríhlutun. Bandaríkjamenn hafa engan áhuga á því. Tel þess vegna líklegt að Obama hafi bara skipt um skoðun til að ályktunin kæmist í gegnum sameinuðu þjóðirnar. Gaddafi er Evrópsk klúður. Sjáið bara góðvin hans og nágranna Berlusconi.
Eflaust vildu leiðtogar þessara þjóða bara trúa leikarskapnum í kallinum, því það er auðveldara en að gera einhvað í honum. Gaddafi hefur verið að brjótast úr leikaraskapnum upp á síðkastið, það er ekki tiltölulega langt síðan hann lýsti yfir Jihad gegn Sviss ef einhver man eftir því. Viðbrögð hans við uppreisninni var seinasta gríman til að falla.
Her Gaddafis nær Benghazi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.2.2011 | 16:23
Menn eru löngu búnir að gefast upp á Lýbíu
Gaddafi fjármagnaði eins og allir vita hryðjuverk um gjörvalla veröld, mest frægastur fyrir Lockerbie. Þess má einnig geta, að þegar Idi Amin réðst inn í Tanzaníu senti Gaddafi hermenn til Úganda í þeim tilgangi að HJÁLPA Idi Amin.
Það var ekki fyrr en 1991 að Gaddafi fór að reyna að hegða sér skikkanlega á alþjóðavettfangi, vegna þess hann sá hvernig fór fyrir stallbróður sínum Saddam Hussein í persaflóastríðinu 91. Hætti hann þá að agnúast sífellt út í Bandaríkjamenn, en hefur þó ekki setið á höndum sínum. Það var fyrir nokkrum árum að hann lýsti yfir heilögu stríði gegn Sviss eins og flestir muna. Hingað til hefur ekki komið til átaka, og má útskýra það á þann hátt að Svisslendingar hafa ekki trú á því að þeir eigi í heilögu stríði við Gaddafi og athafnast því ekkert.
En hvers vegna eru vesturlönd ekki búin að gera neitt í Gaddafi? Það er auðvelt að útskýra það, það er einfaldlega ekki móðins lengur að ráðast inn í þróunarlönd og steypa harðstjórum af stóli. Það var gert í núverandi Íraksstíði en hefur hingað til skilað litlu. Það er betra að láta Líbýa sjálfa um að fá sitt frelsi. Þeir sömu og eru nú að agnúast út í Bandaríkjamenn og kalla Gaddafi bandamann þeirra eru sömu mennirnir og yrðu brjálaðir útaf innrás í Líbýu og það nennir enginn að standa í henni fyrir mann sem virðist vera sjálfdauður hvort sem eð.
Það er erfitt að taka þennan mann alvarlega þegar hann hegðar sér eins og James Bond skúrkur. Allir lífverðirnir hans eru ungar konur og eru gerðar kröfur til útlits þeirra. Nokkrir voru drepnir þegar til uppþota kom þegar fótboltalið tapaði vegna nýs meðlims, sem var þá sonur Gaddafi. Þessu mótmæltu stuðningsmenn íþróttaliðsins og hleyptu líffverðirnir af skotum.
Það er kanski of lítið sagt þegar ég sagði James Bond skúrkur, hann er frekar eins og einn af þessum úr teiknimyndablöðunum.
Enn skotið á fólk í Líbýu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2011 | 21:37
Hvað með landsdómin yfir Geir H. Haarde?
Hins vegar hefði verið ágæt fyrst UVG er svona umhugað um réttarhöld í pólitískum tilgangi, að heyra þau gelta þegar Geir H. Haarde var dreginn einn fyrir landsdóm í skítleglustu pólitík sem ég hef nokkurn tíman séð, þegar samfylking forðaði sínu fólki undan ábyrgð.
Harma pólitísk réttarhöld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)