Wannabe bush?

Já, allt bendir til þess að Björn Bjarnason ætli sér að reyna að gerast Bush.  Kanski ekki á samma mælikvarða enn með svipuðum aðferðum.  Bush fékk lög samþykkt eftir 11 september sem leyfa handtöku(án skilyrða) í eins langan tíma og talið er þurfa, og einnig má pynta grunaða ,,hryðjuverkamenn''.  = lögreglan í Bandaríkjunum má handtaka, pynta og gera nánast hvað sem er við menn svo lengi sem þeir muna að kalla hann hryðjuverkamann.  Þannig notfærði Bush sér 11 september til að auka völd sín. 

Nú virðist Björn Bjarnason vera að reyna eitthvað svipað. Notfæra sér jarðskjálfta til þess að koma upp þessu varaliði sem hann hefur svo miklar mætur á.  Ef lögreglan getur ekki tekið almennilega á mótmælum án þess að berja fólk, af hverju ættu þá slökkviliðs og björgunarsveitar menn að geta það.  Þeir hafa hlotið jafnvel minni þjálfun í því enn lögreglan. 

Nei Bjössi minn, þú færð ekki litlu tindátana þína.  Þú átt nóg af tindátum fyrir.  Við skulum samt gefa þér blöðru ef þú vilt.

mbl.is Heimild til að kalla út varalið hefði komið sér vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hin Hliðin

Fúll og skrýtinn, og hef óeðlilegar skoðanir á öllu.
Það er ekki lygi, þessi skrif eru einkennandi fyrir mann sem hefur sérstaka skoðun á hlutunum og hikar ekki við að láta hana í ljós en hefur samt ekki hugmynd um hvað hann er að tala.

Hin Hliðin, 2.6.2008 kl. 08:13

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

"Hin hliðin", ekki fæ ég séð að þú hafir fært fram nokkur rök einu sinni, og að gefa skít í greinarhöfund á svona marklausan hátt er þér til eigin minnkunar. Það er ekkert að því að vera skrýtinn, og ef hann er fúll yfir þessu bulli í Birni þá er ég bara hjartanlega sammála. Arngrímur, mér finnst þú ættir að fjarlægja orðið "óeðlilegar" úr textanum um þig, enda er ekki annað að sjá, líka miðað við undirtektir í dag hér á blogginu, að þú hafir afskaplega eðlilegar skoðanir a.m.k. á þessu máli. Bloggarinn "Hin hliðin" er hér í greinilegum minnihluta, hlýtur að vera útsendari frá Valhöll eða Háuhlíðinni.
Allan tímann sem hjálparstarf stóð yfir var til staðar borgaralegt varalið skipað sjálfboðaliðum, en þá á ég við alla þá íbúa hér á Suðvesturhorninu sem héldu sig á mottunni á meðan stór hluti lögregluliðsins var upptekinn fyrir austan fjall. Ég veit ekki til þess að það hafi þurft að kalla neinn út sérstaklega til þess að allt færi friðsamlega fram rétt eins og á venjulegum degi, enda var mönnum líka brugðið hér við hristinginn og hugur flestra hjá íbúum Suðurlandsundirlendisins. Við Íslendingar erum nefninlega aldrei samhentari heldur en einmitt þegar náttúruöflin sýna okkur mátt sinn og megin, af því megum við sko vera stolt. Sjálfur fór ég t.d. út úr bænum og hélt norðaustur á bóginn þar sem löggurnar voru síst uppteknar vegna jarðskjálfta enda var víða sýnilegt umferðareftirlit á vegunum. Eins og fram kom annarsstaðar á blogginu þá væri miklu meira vit í að styrkja og efla hjálparsveitirnar sjálfar, frekar en að fjölga þessum blessuðu laganna "vörðum" sem ráðast svo kannski bara á unglinga í kjörbúðum, spreyja piparúða framan í saklaust fólk á bensínstöðvum, fara með samsæri og tilhæfulausum ásökunum gegn fólki sem þorir að segja upphátt skoðun sína á umhverfismálum, hnýsast ítrekað með ólöglegum hætti í stjórnarskrárvarið einkalíf fólks, og almennt hafa grundvallarréttindi samborgaranna að engu. Af slíkum óþverravinnubrögðum íslenskrar lögreglu hef ég ítrekaða persónulega reynslu af misslæmu tagi auk þess sem öll tilvikin sem ég nefndi hér á undan eru staðfest og skjöluð!. Þar sem ekki hefur verið sýnt fram á annað verður maður að taka þessi ummæli Björns eins og hvern annan fasista-áróður sem hann lætur frá sér fara, og í þetta sinn af fullkomnu virðingarleysi fyrir því áfalli sem dundi á Sunnlendingum. Megi það verða honum til ævarandi minnkunar að hafa ætlað að nota þessar hamfarir sem enn eitt tilefnið til slíkrar áróðursstarfsemi fyrir öfgasinnaðri hugmyndafræði sinni. Fyrst honum þykir hugmyndir um lögregluríki svona heillandi ætti hann bara að flytja vestur um haf í það "sæluríki" öfgasinnanna og láta okkur friðelskandi Íslendinga í friði, um aldur og ævi!!! A.m.k. ráðlegg ég honum að vera ekkert að heimsækja Selfyssinga á næstunni... ég held þeir vilji miklu frekar fá aðstoð við að laga húsin sín en fá yfir sig meiri löggufasisma en nú þegar viðgengst hér á landi.

Guðmundur Ásgeirsson, 2.6.2008 kl. 14:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband