Ekkert óvænt hér

Nasismi og Rasismi eru ekkert sérhlutir sem eingöngu hvítingar geta tileinkað sér.  Ef maður skoðar hryðjuverkamenn mið-austurlanda má auðvitað örla á miklum rasisma þar, nema þeir kalla óæðri þar villutrúarmenn, ekki ,,Untermensch'' 

Maður þarf nú ekki að spyrja sig hvers vegna svona hópur hefur skotið upp kollinum þarna í Mongólíu, enda úr nægri sögu þarna að moða til að geta talið sig æðri.  Þar ber auðvitað að nefna Gengis Khan, Subotai og aðra eins kappa(að vísu bölvaðir villimenn og fjöldamorðingjar og væru stríðsglæpamenn, en slík var tíðin þá og stórefa ég að evrópsku konungsríkin hefðu farið öðruvísi að eða austurlensku keisaraveldin.)  Það má eflaust þakka Mongólum fyrir hve þróuð Evrópa varð en ekki Mið-Austurlönd og Austur-Asía enda þutu þar Mongólar um drepandi hverja sem fyrir voru.  Þess ber að nefna þegar þeir réðust á Baghdad og jöfnuðu borgina við jörðu, og fylltu upp í áveitukerfi Íraks og hefur fólkið þar en ekki náð sér fyllilega. Eina sem kom í veg fyrir að örlög Evrópu urðu þau sömu var hjartaáfall stórkhanins, því siðir og venjur Mongóla voru sú að allir þurftu að fara að kjósa nýjan stórkhan, sem var auðvitað bara formsatriði því að sonur stórkhansins tæki auðvitað við, og sluppu Vestur-Evrópu menn þar fyrir horn.

Að auki er vel skiljanlegt að menn séu tortryggnir í garð Kínverja.  Kínverjar eru eins og flestir vita á góðri leið með að verða næsti drullusokkurinn sem allir munu hata(þeir munu taka við af Bush stjórninni) og reikna maður sterklega með að þar sem hreðjatak Kínverja á Bandaríkjamönnum þéttist stöðugt að það verður orðið ansi þröngt um Kanann innan 20 ára og munu þá Kínverjar eflaust ráðast inn í eitthver ríki til að tryggja ,,Frelsi'' og ,,Sjálfstæði'' eins og þeir reyndu með Víetnam þegar Víetnamar réðust inn í Kambódíu til að steypa rauðu Khmerunum af stóli.

Auðvitað telst þetta þó nokkuð kaldhæðnislegt, þar sem Mongólar börðust með Sovétmönnum í heimstyrjöldinni gegn nasismanum, og hefðu eflaust verið flokkaðir sem ,,Untermensch''

Eftir því sem ég athugaði þó virðast þessar hreyfingar vera jaðarhreyfingar án mikils stuðnings, svo vandamálið er takmarkað.

mbl.is Vilja hreint þjóðarblóð Mongóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Verstu rasistarnir (kynþátta-misréttismenn / kynþátta-aðskilnaðarstefnu) sem uppi eru nú í dag í heiminum, og komast upp með það af flestum fjölmiðlum hins vestræna heims án þess að minnst sé neitt sérstaklega um það, eru Júðar (Gyðingar). 

Hversvegna þegja flestir fjölmiðlar heimsins slíka "frétt" í hel?  Jú, flestum fjölmiðlum hins vestræna heims er stjórnað af og / eða eru í eigu Júða.

Kveðja, Björnm bóndi 

Sigurbjörn Friðriksson, 4.8.2010 kl. 09:17

2 identicon

Sigurbjörn: Er það þess vegna þegar Israel svarar fyrir sig og drepa múslíma þá eru ALLIR fjölmiðlar heimsins að drulla yfir þá ég veit ekki hvað þú hefur verið fjölmiðlar hafa aldrei staðið með Israel svo þeir geta varla stjórnað eins miklu og þú segir. mestu rasistar eru múslímanir þeir flokka ekkert endilega eftir kynþáttum heldur trúm allarvega kringum aldirnar hafa múslímanir verið duglegastir að þjóðernishreyna sín löng og annara manna lönd þegar þeir loksins komast í meirihlutan.

Það er rosalegt hvað er orðið mikið gyðinahatur hjá þessum MBL blogg hálvitum.

kók (IP-tala skráð) 4.8.2010 kl. 12:55

3 Smámynd: Arngrímur Stefánsson

Halló halló Sigurbjörn.  Hefuru ekki fylgst með fréttum nýlega?  Ég sé ekki betur en að það er algerlega þagað í hel einmitt hvernig Arabalöndin og sameinuðu þjóðirnar eru í því að sverta mannorð gyðinga. 

Sameinuðu Þjóðirnar eru auðvitað ekkert nema þrýstihópur þróunarríkja, hvers konar samtök leyfa Íran að vera með í nefnd um réttindi kvenna?

Mavi Marmara var sent út af Tyrkjum.  Veistu hvað Tyrkir eru að gera á Kýpur? Erjur á Kýpur milli Grikkja og Tyrkja urðu til þess að Tyrkneskir hermenn réðust á eyjuna, ráku Grikki af heimilum sínum, skiptu eyjunni í tvennt og fluttu in helling af Tyrkjum frá Tyrklandi.  Minnir þetta ekki á eitthvað, en eflaust er það í lagi því að fórnarlömbin eru Orþódox kristnir og öllum er skítsama um þá.  Auðvitað er líka bannað að tala um þetta í Tyrklandi annað en að það sé þá sagt að það er verið að vernda Tyrkneska Kýpurbúa.

Það er ekki langt síðan Kúrdar í Tyrklandi máttu tala Kúrdísku opinberlega, og enn í dag mega þeir ekki skýra börnin sín Kúrdverskum nöfnum, bara tyrkneskum.  Eru það ekki þjóðernishreinsarnir af fínni gerðinni? Hafa Tyrkir eitthvern rétt á því að gagnrýna Ísrael þegar Tyrkir drepa Kúrda kerfisbundið og halda þeim niðri, ráðast inn í nágrannalönd til að tryggja öryggi Tyrkja sem búa í því nágrannalandi og fangelsa menn sem tala um þessa hluti? Nei.  Mavi Marmara skipið var hrein pólitík, eitthverjir ginnkeyptir sakleysingjar voru auðvitað fengnir með til að láta þetta líta saklaust og fínt út en eins og sjá má á viðbrögðum skipverja við hermönnunum voru þetta greinilega öfgasinnaðir pólitískt þenkjandi andstæðingar Ísraelsríkis. 

Og já... Tyrkir fundu upp nútíma þjóðarmorðið, athugaðu bara hvað þeir gerðu við Armena í fyrri heimstyrjöld(sem þeir voru ekki einu sinni í stríði við, þjóðirnar bjuggu báðar í sama landinu) Það að Tyrkir leyfi sér að gagnrýna Ísrael er eins og Norður-Kórea að gagnrýna Kína.

Allt í allt sýnist mér fréttaflutningur vera Íslamsinnaðri en Gyðingasinnaðri.  Annað gæti auðvitað talist sem rasismi.

Arngrímur Stefánsson, 4.8.2010 kl. 15:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband