Fáránlegt

Eftir því sem ég best veit, hafa engin afbrot á íslandi sem framin hafa verið með hálfsjálfvirkri skammbyssu(ef nokkuð afbrot hefur nokkurn tíman verið framið með slíku vopni) verið að nota löglega keypta og skráða byssu. 

Þar sem þessi löggjöf myndi eingöngu bitna á þeim sem eiga vopnin löglega til skotfimi, myndi þetta auðvitað engin áhrif hafa á þá sem myndu smygla sér inn ólöglegu vopni til að nota við glæpi. 

Seinast þegar ég man eftir því að maður var drepinn á Íslandi með skotvopni var ekki um neina undierheimastarfsemi að ræða heldur geðveiki, en það var víst bara venjulegur veiðiriffill og hefði gerandinn vel getað áorkað sömu niðurstöðu með hamri eða kjöthníf. 

Heldur frumvarpshöfundur virkilega, að glæpamenn munu fylgja lögunum?
mbl.is Dauði skammbyssuskotfimi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta viturlegt

Sjálfur gæti ég ekki bent á verri mann til að leiða þetta verkefni en Össur. 

Það byggist aðalega á því að Össur hefur líklegast til klúðrað pólitísku lífi sínu á Íslandi með því að sækja jafnhart að ESB og raun ber vitni, í óþökk þjóðarinnar.

Eina von Össurs er að vera búinn að koma Íslandi í sæti í ESB fyrir lok kjörtímabils, því enginn annar flokkur tekur við honum nema Samfylking. 

Það er almennt vitað að Össur setur ESB-umsóknina framar öllu, hann var kosinn út á hana og ef til vill gætu vinsældir hans innan samfylkingar staðið á því hvort hann kemur okkur inní ESB eða ekki.  Takist Össur ekki að koma okkur í ESB fyrir kjörtímabilslok reikna ég með að hann fari úr Íslenskri pólitík. 

Þess vegna finnst mér harla heimskulegt, að hafa sama mann yfir Icesave málinu og ESB umsókninni, vegna þess að hagsmunir skarast þarna. 

Árni Páll hafði staðið sig vel, og myndi eflaust halda því áfram, fengi hann tækifæri til. 

Þetta jaðrar við Stalínisma, þar sem menn sem stóðu sig vel var komið burt, og í staðinn settir menn sem voru oftast óhæfir, en héldu stuðningi við flokkin og stefnu hans.  Össur er vissulega sammála stefnu samfylkingar, sem er ESB-ESB-ESB. 


mbl.is Össur fer með Icesave-málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kínverskir fjárfestar

Já, ævintýrið um væringjann.  Skipið lá í slipp við svartahaf þar til Kínverkskir fjárfestar í hóteliðnaðnum komu til Úkraínu og vildu kaupa það.  Sögðust ætla að breyta því í spilavíti.  Spilavíti á flugmóðurskipi hljómar a.m.k. gáfulegra en gólfvöllur. 

Mikið er þetta nú kunnugleg saga.  Núna er almennt trúað að þeir sömu Kínversku auðmenn hafi verið í vinnu hjá Kínverska ríkinu og fjárfest í því sem Kínverska ríkið sagði þeim að fjárfesta. 

Skipið fór nefnilega ekki til Macau í Suður-Kína eins og til stóð, heldur til Dalían í norð-austur Kína og fór þar í slipp.  Einn maður sem ég þekki sagði mér, að þótt ég treysti ekki Kínversku ríkisstjórninni(enda verstu fasistar) þá ætti ég ekki að láta það bitna á Kínverskum fjárfestum. 

En hve auðvelt er fyrir Kínverska ríkið að kæra og dæma auðmenn sína um fjárlagabrot(sönn eða loginn) skyldu þeir gerast stjórninni ósamvinnuþýðir?  Auðmenn í kommúnistaríki er þversögn í sjálfu sér, ég gæti best trúað því að þessir menn væru í vinnu hjá Kínverska ríkinu við það eitt að fjárfesta í því sem þeim er sagt, og fá í skiptum að stunda viðskipti sín nokkuð frjálslega innan(og utan) Kínverskra laga, svo lengi sem þeir svari köllum stjórnarinnar. 


mbl.is Myndir af nýju kínversku herskipi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slæmt fordæmi

Þótt það sé vissulega blessunarlegt, að Gilad sé loksins laus úr haldi Hamas, þá verð ég að setja stórt spurningarmerki um réttmæti ákvörðunar Ísraelska stjórnvalda að frelsa hann.  Þótt það sé líklegast hrikaleg lífsraun að búa í 5 ár í haldi Hamas, þá hefur þessi ákvörðun Ísraelskra stjórnvalda, ekki eingöngu gefið eftir, heldir einnig hvatt Hamas. 

Hryðjuverkamenn sem voru í fangelsum geta nú tekið þátt í annar árásarhrinu gegn Ísrael, og jafnvel kennt börnum tækni.  Auk þess hefur eftirgjöf Ísraela beinlínis hvatt Hamas til að halda áfram mannránum og hryðjuverkum.  Þeim eflist móður, vitandi að hægt sé að sleppa við að afplána alla sína refsingu ef þeim tekst að ræna Ísraelsmönnum, og fyrst að Ísraelskir fangar eru virði svona margra Hamas-liða, munu þeir fjölga mannránum ef einhvað er.  Þeir gætu jafnvel tekið upp á því að reyna að ræna börnum við fleiri tækifæri, þau væru ábyggilega virði 2000 fanga. 
mbl.is Shalit kominn til Ísraels
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er ekkert óalgengt

Þótt þessi fróma frú hafi helst til orðið illa úti, þá er ekkert nýtt við það að asískar konur eldist um áratugi á nokkrum dögum, eins og vel má sjá á meðfylgjandi skýringarmynd.

aging-process


















Þótt bæði lögregla og vísindamenn standi ráðþrota, þá virðist þetta hafa einhvað um lit húðarinnar
að gera, líkt og sjá má á næstu mynd.  170510
mbl.is Eltist um hálfa öld á nokkrum dögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hert skotvopnalög breyta engu

Það er því miður sorgleg staðreynd að herðingar á skotvopnalögum hafa lítið að segja til að minnka drápstíðni, því þeir sem vilja drepa koma höndum yfir skotvopn hvort sem eð, þótt þau séu ólögleg. 

Sé borin saman tíðni milli morða með skotvopnum og byssueignar, þá eru ekki mikil tengsl á milli skotvopnaeignar á morðtíðni. 

http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_countries_by_gun_ownership

http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_countries_by_intentional_homicide_rate

Ekki ýkja mikil tengsl þar.
mbl.is Vilja endurskoða lög um skotvopn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

''Trúverðugleiki'' alþjóðahvalveiðiráðsins í húfi?

Ég hélt að trúverðugleiki alþjóðahvalveiðiráðsins væri fokinn út í veður og vind og hefði vikið fyrir hinu óopinbera alþjóðahvalverndurnarráði, því í raun er þetta ráð ekkert annað en félagaklúbbur þeirra sem elska hvali, það sást alveg greinilega að það stóð aldrei til hjá þessu blessaða ráði að veita Íslendingum, Norðmönnum og Japönum neitt svigrúm til að veiða hvali nokkurn tíman aftur. 
mbl.is Umhverfisverndarsamtök fagna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur er Össur að vanda

Það virðist fara framhjá alveg gífurlega mörgum, þar á meðal Össur að það er á stefnuskrá Hamas að útrýma Ísrael, og einhvern vegin heldur Össur að það hjálpi að mynda samsteypustjórn með Hamas og Fatah, þegar það á sama tíma útilokar öll samskipti við Ísrael.  Auðvitað yrði ekkert sjálfstæði þarna á svæðinu án samþykkis Ísraels og það verður auðvitað ekki veitt samsteypustjórn sem Hamas á þátt í. 

Össur veit greinilega jafn lítið um málefni Palestínu og hann veit um Ísland, enda virðist hann reiðubúinn að afsala fiskveiðiréttindum okkar fyrir Evrópusambandið. 

2 hlutir sem ættu að fara á hreint

Ísland þarfnast fisksins, án hans drepumst við.  Varanlegar úrlausnir eru ekki í boði og Íslendingar munu aldrei samþykkja ESB samning án þeirra.

Ísrael mun aldrei semja við Hamas í nálægri framtíð, Palestínumenn ættu hitt þó heldur að reyna að koma í veg fyrir að vera bendlaðir við Hamas.
mbl.is Gagnrýnir herkví
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Húkkaðu far í Grikklandi

Ég sting upp á því að við spörum okkur stórfé og fáum kallinn til að fljúga bara til Grikklands í stað Egyptalands, þar getur hann húkkað sér far ef hann er nógu snöggur. 


mbl.is Össur fer til Gasa og Vesturbakkans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gömul hefð með nýju sniði

Nú þar sem ekki er ýtt eftir neinum að fara í slíka herþjónustu hef ég ekkert á móti þessu.  Þetta er einfaldlega gömul hefð sem auðveldlega má sjá í Íslendingasögunum, en þar áttu Íslendingar mjög auðvelt með að komast í her norska konunga fyrr á tímum, eða í annarskonar þjónustu.  Það þótti einfaldlega flott í Noregi að vera með Íslendinga í vinnu, líkt og Egill Skallagrímsson gerði á sínum tíma. 

Það hefur fáum Íslendingum orðið meint af slíkri þjónustu og er þetta í raun bara eðlilegt ástand þar sem margir sækja í herþjónustu vegna ævintýrarþrár(þótt þeir uppskeri ekki alltaf það sem þeir sái) og á Íslandi er ekki í neinn her til að komast í.  Auk þess eru ef til vill einhverjir sem styðja aðgerðirnar í Afganistan og langar til að taka þátt í því starfi, þá er þetta ágæt leið. 

Það voru nú líka einhverjir Norðmenn, Svíar og Danir sem gengu í Finnska herin í vetrarstríðinu 1939-1940 og enginn sá ástæðu til að agnúast út í slíkt. 
mbl.is Íslendingar í herþjónustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband