14.6.2011 | 18:20
Gömul hefð með nýju sniði
Nú þar sem ekki er ýtt eftir neinum að fara í slíka herþjónustu hef ég ekkert á móti þessu. Þetta er einfaldlega gömul hefð sem auðveldlega má sjá í Íslendingasögunum, en þar áttu Íslendingar mjög auðvelt með að komast í her norska konunga fyrr á tímum, eða í annarskonar þjónustu. Það þótti einfaldlega flott í Noregi að vera með Íslendinga í vinnu, líkt og Egill Skallagrímsson gerði á sínum tíma.
Það hefur fáum Íslendingum orðið meint af slíkri þjónustu og er þetta í raun bara eðlilegt ástand þar sem margir sækja í herþjónustu vegna ævintýrarþrár(þótt þeir uppskeri ekki alltaf það sem þeir sái) og á Íslandi er ekki í neinn her til að komast í. Auk þess eru ef til vill einhverjir sem styðja aðgerðirnar í Afganistan og langar til að taka þátt í því starfi, þá er þetta ágæt leið.
Það voru nú líka einhverjir Norðmenn, Svíar og Danir sem gengu í Finnska herin í vetrarstríðinu 1939-1940 og enginn sá ástæðu til að agnúast út í slíkt.

Íslendingar í herþjónustu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þú ættir kanski að lesa Egilssögu aftur, sem snýst að mestu um deilur og ófrið Egils við konunga og höfðingja í Noregi, sem venjulega enduðu með bardögum og drápum. Þegar hann fór fyrst til Noregs á unga aldri tókst honum þó að vera til friðs í öfáa mánuði, þ.e. þangað til að hann fór á fyllerí og drap mann, og rétt komst undan konungsmönnum og þurfti svo að flýja land.
Varðandi Íslendinga í norska hernum þá er það þeim auðvitað velkomið að gera hvað sem þeir vilja, en það er allt annað mál ef norski herinn er með útsendara á Íslandi til að fá menn til herþjónustu, og það ætti að stoppa þá þróun hið snarasta.
palli (IP-tala skráð) 15.6.2011 kl. 07:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.