Færsluflokkur: Lífstíll

Íslenskir dómar

Já, er það ekki frábært

Skelltu hurð á kennara og þú þarft að borga milljónir. 

Nauðgaðu dóttur þinni í 7 ár samfellt og þú færð 2 ára dóm

Steldu fyrir 1000 kall og þú færð 5 mánuði og háa fjársekt



Það er gott að búa á Íslandi, þar sem dómskerfið er öfugt, smáglæpir eru alvarlegari enn stórglæpir.  Shocking

Nú þurfum við bara að finna upp aðferð til að fá heitan snjó detta uppávið og við getum kallað okkur öfugaland.  Þá ættu nú fólkið í ferðamanna iðnaðinum að verða ánægt.


mbl.is Stal súpu og fer í fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræðilegur glæpur

Þessi maður hefði átt að fara í fangelsi fyrir löngu fyrir að stofna eða hjálpa til við stofnun 2 hræðilegra hljómsveita.  Svona glæpir eru óafsakanlegir.
mbl.is Stofnandi Backstreet Boys og 'N Sync dæmdur í 25 ára fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur á óvart???

Það er nú meira ruglið, þetta hefði hvaða maður getað sett fram.  Eftir því hve miklar framfarir hafa orðið í læknavísindum, er ekkert eftir til að deyja úr.  Ég þekki ansi fáa sem hafa dáið úr öðrum orsökum enn þessum. 

Þetta eru þó slæmar fréttir fyrir mig, mig langar til að deyja úr einhverju byltingakenndu, og vonandi koma af stað nýrri tísku um leið.
mbl.is Dauðsföllum vegna hjartasjúkdóma, krabba og bílslysa mun fjölga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

115.000 Hippar

Ekki skil ég hvað á að gera með 115.000 hippa, eða samkvæmt lögmáli Arngríms ,,sum loforð eru lygar'' Ættum við ekki að fá nema kanski 100.000 hippa. 

Hippar eru skrýtið fólk sem klæðist undarlegum fötum, klippir sig undarlega, og á sjaldan peninga.  Þegar þeim tekst að nurla saman nægu fé til Íslandsferðar, vita þeir að ekki er snjallt að kaupa neitt á Íslandi, heldur gista líklegast í tjöldum og borða heimagerðar samlokur. 


                                             Hér má sjá hippa.

 Á myndinni hér að ofan má sjá Karlhippa, og Kvenhippa.  Hippan ná sjaldan svo háum aldri, enn hafa hippafræðingar giskað á að aldur þessara einstaklinga sé á 70 ára bilinu. 

Nú, fylgjandi innanríkis, utanríkis og yfirallt pólitíks stefnu Íslands,,Hvernig er hægt að fá sem mestan pening fyrir sem minnst?''  Er ég með hrefnuveiðum, þar sem hrefnukjöt er lostæti.  Koma 100.000 hippa sem hafa skrifað sig á blað hefur hins vegar enga kosti í för með sér, annað enn að líkur eru á því að tollurinn setji nýtt met á upptækum fíkniefnum. 


mbl.is Sorgleg ákvörðun um hvalveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband